Jöklaganga á Vatnajökli með Glacier Adventure: Fjölskylduferð
Jöklaganga á Vatnajökli með Glacier Adventure
Jöklaganga á Vatnajökli fyrir hópa, sendið okkur tölvupóst á [email protected] fyrir frekari upplýsingar og tilboð.
Jöklaganga á Vatnajökli eru ævintýri líkust. Vatnajökull er stærsti jökull Evrópu og fagur á að líta. Margir hafa horft til hans á ferðalögum en færri haft kost á að kynnast honum af eigin raun, enda er oft talað um að það sé hættulegt að vera á jöklum. Með réttum búnaði og leiðsögumanni er ævintýri að komast í jöklagöngu. Jöklaganga Glacier Adventure hefst frá Hala í Suðursveit. Þaðan keyrum við inn í Þröng og göngum þaðan á Breiðamerkurjökul. Við jökulsporðinn er Jökulsárlón, ein þekktasta náttúruperla Íslands.
Leiðsögumaður okkar fer með þig í ógleymanlega jöklagöngu á Breiðamerkurjökli, einn stærsta skriðjökul Vatnajökuls. Ferðin byrjar á Hala þar sem móttakan okkar er og þar er allur nauðsynlegur búnaður afhentur.
Jöklaferðin tekur á milli 3,5 og 4 klukkustundir (1 – 1,5 klst. á jöklinum), þar með talinn akstur fram og til baka frá Hala, móttökustað okkar. Þessi jöklaferð flokkast sem nokkuð létt jöklaganga fyrir flest börn og fullorðna.
Aldurstakmark er 10 ár en ef hópur ferðast saman þá eru gerðar undantekningar. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á [email protected]
Að lokinni ferð er tilvalið að nýta sér aðstöðu okkar í Fjóshlöðunni þar sem hægt er að borða nesti, drekka heitt kakó og fara í pílukast, kubb eða lita á fjörugrjót. Þetta er tilvalin fjölskylduferð.
Read MoreÁður en jöklagangan hefst færðu allan nauðsynlegan öryggisbúnað, jöklabrodda, sigbelti, hjálm og ísexi. Mikilvægt er að hafa réttan skófatnað þegar farið er í jöklagöngu. Hægt er að leigja gönguskó í móttöku okkar.
Jöklaferðin hefst í móttöku Glacier Adventure á Hala. Þaðan er keyrt á jeppum að jökulsvæðinu. Það tekur um það bil 30 mínútur. Frá bílastæðinu er gengið rúman 1 km að jökulsporðinum. Þar er búnaðurinn og notkun hans kynntur og farið yfir öryggisreglur sem nauðsynlegt er að þekkja áður en gengið er á jökullinn.
Á Jöklinum sjáum við stóra svelgi sem hafa borað sig í gegnum jökulinn, þar sem bráðvatn íssins seytlar í lækjum og litlum fossum. Á jöklinum er aska frá eldgosum sem myndar stundum pýramída, sem eru kallaðir dríli.
Í þessari einstöku jöklaferð færðu tækifæri til að fræðast um hinn stórbrotna jökul, hvernig hann er myndaður og hvernig hann heldur áfram að breytast og mótast á hverjum degi.
Þetta er einstakt tækifæri til að skoða jökulinn ná góðum myndum og skapa ógleymanlegar minningar.
Að lokinni ferð er tilvalið að nýta sér aðstöðu okkar í Fjóshlöðunni þar sem hægt er að borða nesti, drekka heitt kakó og fara í pílukast, kubb eða lita á fjörugrjót. Þetta er tilvalin fjölskylduferð.
Tímasetning ferða: 9:00 & 14:00
Lengd ferðar: 3,5 – 4hours
Aldurstakmark: 10 ára
Erfiðleikastig: Nokkuð létt
Hópastærð: 2-12 manns
-Jeppaferð með leiðsögn á Breiðarmerkurjökli
-Allur jöklatengdur búnaður, jöklabrodda, sigbelti, hjálmur, ísöxi
-Hægt er að leigja gönguskó og regnföt á staðnum.
-Góðir gönguskór, hægt að leigja á staðnum (1000 kr.)
-Góður útivistarfatnaður, fer eftir veðri. Þrjú lög að ofan: Innanundir fatnaður, létt flíspeysa, vatns/vindheldur jakki. Tvö til þrjú lög að neðan: Innanundir fatnaður, léttar og hlýjar buxur og vatns/vindheldar buxur. Endilega kíkið hér til að sjá frekari upplýsingar um fatnað.
-Húfa/buff og vettlingar
-Sími og/eða myndavél ef fólk vill festa minningarnar á filmu
-Gott að hafa lítinn bakpoka til að setja aukaföt í, lítinn vatnsbrúsa og jafnvel smá snarl.
Gott að hafa í huga
Vinsamlega verið mætt á móttökustað á Hala 20 mín fyrir brottfarartíma til að undirbúa jöklaferðina og hitta leiðsögumanninn ykkar.
Hægt að finna upplýsingar um veðrið á www.vedur.is og færðina á www.vegagerdin.is
Fyrirvari: Allar jökla-og fjallaferðar eru farnar á ábyrgð þátttakenda. Glacier Adventure ber enga ábyrgð á slysum sem orsakast af viðskiptavinum eða rekja má til þeirra eigin aðgerða.
More photos from earlier tours
What are people saying
Amazing glacier walk
View reviews on Tripadvisor“Great guide and amazing experience. We had a great time walking on and learning about the glacier. Highly recommended.”S P
-
WE ARE AUTHORIZED TOUR OPERATOR
Glacier Adventure has a licence provided by Icelandic tourist board to function as a tour operator.